Frír flutningur til og frá**Fyrir pantanir yfir 10.000 kr. Svar innan sólarhrings English · 778 8817

RentEvent · rentevent.is · 778 8817

Leiðbeiningar

Bjórdæla – uppsetning og notkun

Við tengjum dæluna við fyrsta kútinn þegar við komum með hana. Hér er hvernig þú kveikir á henni, stillir hana, hellir og skiptir um kút ef hann tæmist.

Uppsetning

  1. Hafðu dæluna á stöðugu borði og kútinn við hliðina eða á gólfinu fyrir neðan. Geymdu kútinn í skugga og á svölum stað.
  2. Stingdu dælunni í samband við venjulega innstungu.
  3. Kveiktu á rofanum aftan á dælunni.
  4. Snúðu hnappnum framan á dælunni (0–7) á 7. Þá er bjórinn kaldastur og froðan minnst.
  5. Gefðu dælunni um 10 mínútur til að kæla áður en þú hellir fyrsta glasið.

Að hella og stilla froðuna

  • Hægra megin við svarta handfangið er silfurrofi sem stýrir rennslinu og froðunni.
  • Neðst kemur mest úr krananum, en þá er líka mest froða.
  • Því ofar sem rofinn er, því minni froða og því auðveldara að hella. Alveg efst kemur ekkert út.
  • Haltu glasinu á ská undir krananum, togaðu svarta handfangið alveg fram og réttu glasið af þegar það fyllist. Lokaðu krananum alveg á eftir.
  • Mikil froða? Færðu silfurrofann aðeins ofar, athugaðu að hnappurinn framan á sé á 7 og bíddu um 30 sekúndur á milli glasa. Fyrstu glösin geta freytt meira.

Þegar kúturinn tæmist: að skipta um kút

  1. Þú þarft ekki að slökkva á dælunni á meðan þú skiptir um kút.
  2. Lyftu handfanginu á tenginu upp svo það lokist og taktu tengið af tóma kútnum.
  3. Settu tengið á nýja kútinn á sama hátt og það sat á þeim gamla og þrýstu handfanginu niður þar til það læsist.
  4. Helltu fyrsta glasinu. Það getur freytt aðeins.

Gott að vita

  • Nýi kúturinn þarf að vera með sama tengi og sá fyrri. Ertu óviss? Hringdu í 778 8817 áður en þú tengir.
  • Dælan þrýstir á kútinn með venjulegu lofti, svo bjórinn í kútnum geymist best ef hann klárast innan tveggja sólarhringa frá tengingu.
  • Í lok veislunnar: slökktu á rofanum aftan á, taktu dæluna úr sambandi, lyftu handfanginu á tenginu og taktu það af kútnum. Þurrkaðu af dælunni ef eitthvað hefur hellst niður.

Vantar aðstoð? Hringdu í 778 8817. Allar leiðbeiningar