Frír flutningur til og frá**Fyrir pantanir yfir 10.000 kr. Svar innan sólarhrings English · 778 8817

RentEvent

Veisluleiga og partýleiga í Reykjavík

Frír flutningur til og frá* · Svar innan sólarhrings *Fyrir pantanir yfir 10.000 kr.

RentEvent er veisluleiga á höfuðborgarsvæðinu. Við leigjum veislutjöld, borð og bekki, útihitara, bjórdælur, glös og barþjóna – og komum með allt heim til þín og sækjum það aftur eftir veisluna.

Allt í veisluna á einum stað

  • Veislutjöld og partýtjöld – 4×5 m (34.990 kr. á dag) og 5×8 m (49.990 kr. á dag). Við getum reist tjaldið og tekið það niður.
  • Borð og bekkir – 9.990 kr. settið, sæti fyrir 6–8 gesti.
  • Útihitarar – 2000 W rafmagnshitarar, 4.990 kr. á dag.
  • Bjórdæla – kældur bjór beint úr kút, 14.990 kr. á dag. Engin CO₂-hylki.
  • Glös til leigu – bjór-, vín-, kokteil-, highball- og lowball-glös frá 190 kr. glasið. Þú skilar þeim óþvegnum.
  • Barþjónn – reyndur barþjónn frá 8.990 kr. á klukkustund.
  • Síróp og púrra fyrir kokteila og óáfenga drykki.

Fyrir hvaða veislur?

Afmæli, garðveislur, útskriftarveislur, brúðkaup, fermingar, árshátíðir og fyrirtækjaviðburði, jólaboð og þorrablót, ættarmót og götupartý. Hvort sem veislan er heima, í garðinum, í sal eða á vinnustaðnum.

Svona virkar partýleigan

  1. Veldu búnað og dagsetningu. Dagatalið sýnir hvað er laust og verðið birtist strax.
  2. Bókaðu og greiddu á netinu með korti. Staðfesting kemur í tölvupósti.
  3. Við komum með búnaðinn og tengjum bjórdæluna hvar sem er á höfuðborgarsvæðinu (Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabæ, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Álftanesi). Flutningur til og frá er frír*. *Fyrir pantanir yfir 10.000 kr.
  4. Við sækjum allt aftur eftir veisluna. Glösunum má skila óþvegnum.

Dæmi: garðveisla fyrir 30 manns

  • Veislutjald 5×8 m – 49.990 kr.
  • Uppsetning og niðurtekt tjaldsins – 29.990 kr.
  • 4 sett af borðum og bekkjum (um 30 sæti) – 39.960 kr.
  • 2 útihitarar – 9.980 kr.
  • Bjórdæla – 14.990 kr.
  • 30 bjórglös – 5.700 kr.

Samtals 150.610 kr. fyrir einn leigudag, með flutningi til og frá. Þetta er aðeins dæmi, samanlagt listaverð en ekki pakki – þú velur bara það sem hentar þinni veislu. Gestareiknirinn segir þér hvað þú þarft mikið.

Algengar spurningar

Hvað kostar að leigja veislubúnað?
Það fer eftir því hvað þú leigir. Borð og bekkir kosta 9.990 kr. settið, glös frá 190 kr., bjórdæla 14.990 kr. á dag og veislutjald frá 34.990 kr. á dag. Verðið birtist strax þegar þú velur dagsetningu.

Er flutningur til og frá innifalinn?
Flutningur til og frá er frír á höfuðborgarsvæðinu*. Fyrir viðburði utan þess, hafðu samband og við finnum lausn. *Fyrir pantanir yfir 10.000 kr.

Leigið þið stóla?
Við leigjum borð og bekki í settum, eitt borð og tvo bekki með sætum fyrir 6–8 gesti, en ekki staka stóla.

Hvað þarf ég að bóka með miklum fyrirvara?
Vinsælar helgar á vorin og sumrin bókast oft vikum fyrirfram, sérstaklega tjöldin. Dagatalið á vörusíðunum sýnir hvað er laust.

Get ég sótt búnaðinn sjálf/ur?
Já, eftir samkomulagi. Hafðu samband fyrst og við finnum tíma.

Selur RentEvent áfengi?
Nei. Þú leggur til drykkina og klakann; við komum með búnaðinn og barþjóninn ef þú vilt.

Skoða búnað og bóka → eða fáðu tilboð.