RentEvent · rentevent.is · 778 8817
Leiðbeiningar
Útihitari – notkun
Hitarinn gengur fyrir rafmagni og er tilbúinn um leið og hann er kominn í samband.
Áður en kveikt er
- Settu hitarann á slétt og stöðugt undirlag, minnst 1 m frá tjalddúknum, veggjum og öllu sem getur brunnið.
- Ekki hylja hitarann og ekki hengja neitt á hann.
- Notaðu útisnúru sem þolir álagið og rúllaðu henni alveg af keflinu. Helst á hver hitari að vera á sinni grein í rafmagnstöflunni, ekki með bjórdælu, ofni eða hraðsuðukatli.
Að kveikja og stilla hitann
- Stingdu hitaranum í samband.
- Togaðu í spottann til að kveikja.
- Hvert tog skiptir yfir í næstu hitastillingu. Stillingarnar eru þrjár.
- Togið eftir síðustu stillinguna slekkur á hitaranum.
Öryggi og frágangur
- Slökktu á hitaranum þegar enginn er nálægt og í lok kvöldsins, og taktu hann úr sambandi.
- Hitahausinn verður mjög heitur. Láttu hann kólna í nokkrar mínútur áður en þú færir hann eða snertir.
- Slær rafmagnið út? Þá er of mikið á sömu grein. Færðu hitarann í innstungu á annarri grein.
Vantar aðstoð? Hringdu í 778 8817. Allar leiðbeiningar