Frír flutningur til og frá**Fyrir pantanir yfir 10.000 kr. Svar innan sólarhrings English · 778 8817

RentEvent · rentevent.is · 778 8817

Leiðbeiningar

Veislutjald 5×8 m – uppsetning

Svona reisir þú tjaldið og tekur það niður. Bættir þú við uppsetningu og niðurtekt? Þá sjáum við um þetta allt og þú þarft ekki að gera neitt.

Áður en þú byrjar

  • Athugaðu veðurspána. Tjaldið er ekki reist ef meðalvindur fer yfir 10 m/s eða hviður yfir 15 m/s.
  • Svæðið þarf að vera slétt og fast, minnst 6 × 9 m, með 3 m lofthæð án greina, þakrenna eða lína.
  • Hreinsaðu steina, greinar og annað hvasst af svæðinu svo dúkurinn rifni ekki.
  • Fáðu hjálp. Það þarf minnst fjóra til að lyfta þakgrindinni.

Hlutirnir í tjaldinu

Teikning af grind 5×8 m tjaldsins séð ofan frá, með númerum hlutanna
Séð ofan frá. Tölurnar vísa í listann. Appelsínugulur hringur = fótur (3).
1Stutt stöng10 stk.
2Löng stöng22 stk.
3Fótur10 stk.
4Tengihólkur (tengir stutta og langa stöng)10 stk.
5Horn, 3 armar, 110° (hornin)4 stk.
6Horn, 4 armar, 110° (langhliðar)6 stk.
7Horn, 3 armar, 140° (endar mænis)2 stk.
8Horn, 4 armar, 140° (mænir)3 stk.
Þakdúkur1 stk.
Hliðarspjöld8 stk.
Gaflar2 stk.

Hæð við hliðar 2,00 m og 2,85 m undir mæni.

Uppsetning skref fyrir skref

Þrjú skref: grindin á jörðinni, önnur hliðin uppi með dúknum, tjaldið uppi
1: grindin samsett á jörðinni · 2: önnur hliðin uppi og dúkurinn dreginn yfir · 3: hin hliðin uppi og hliðarnar komnar á.
  1. Leggðu allar stangir og horn á jörðina eins og á teikningunni hér að ofan.
  2. Settu sperrurnar saman: langa stöng (2) og stutta stöng (1) saman með tengihólki (4). Langa stöngin snýr að þakbrúninni og sú stutta að mæninum.
  3. Stingdu samsettu stöngunum í hornin svo öll þakgrindin liggi samsett á jörðinni. 110° hornin (5 og 6) fara á langhliðarnar og 140° hornin (7 og 8) á mæninn í miðjunni.
  4. Lyftið annarri langhliðinni og stingið fótunum (3) í hornin þeim megin.
  5. Dragið þakdúkinn yfir grindina og bindið hann vel fastan.
  6. Lyftið hinni langhliðinni og stingið restinni af fótunum í.
  7. Hengdu hliðarspjöldin á og gaflana á endana.
  8. Festu tjaldið niður með því sem fylgir og farðu hringinn til að athuga að öll tengi sitji föst og dúkurinn sé vel bundinn.

Meðan á veislunni stendur

  • Enginn opinn eldur, grill eða gashitari inni í tjaldinu. Rafmagnshitararnir okkar eru í lagi.
  • Ef vindur fer yfir mörkin: farðu með gestina út og taktu tjaldið niður. Ertu óviss? Hringdu í 778 8817.

Niðurtekt og skil

  1. Taktu hliðarspjöldin og gaflana af og brjóttu þau saman.
  2. Losaðu festingarnar, lyftið annarri hliðinni og takið fæturna úr þeim megin, svo hinni.
  3. Leystu þakdúkinn og taktu hann af grindinni. Taktu svo grindina í sundur.
  4. Hristu gras og óhreinindi af dúkunum og settu allt aftur í pokana. Er dúkurinn blautur? Láttu hann þorna ef þú getur, annars láttu okkur bara vita.

Vantar aðstoð? Hringdu í 778 8817. Allar leiðbeiningar