Afhending og skil
Afhending
RentEvent býður upp á fría heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu.
Allur búnaður er afhentur á heimilisfang eða viðburðastað samkvæmt umsömdum tíma við pöntun.
Athugið að ekki er boðið upp á sjálfsafhendingu að svo stöddu.
Afhendingartími er staðfestur sérstaklega við pöntun.
Skil
Búnaður skal:
• Vera tilbúinn til afhendingar á umsömdum tíma.
• Vera í sama ástandi og við afhendingu.
Seinkun á skilum eða óeðlilegt slit/tjón getur leitt til aukagjalda.
Afhending og uppsetning á viðburð
Ef RentEvent sér um uppsetningu og/eða niðurtekt skal tryggja greiðan aðgang að staðnum á umsömdum tíma.
Viðskiptavinur ber ábyrgð á að aðstæður séu öruggar og hentugar fyrir uppsetningu búnaðar.