Algengar spurningar
Gott að vita
Finnurðu ekki svarið? Hringdu í 778-8817 eða sendu okkur póst — við svörum eins fljótt og auðið er.
Hvert sendið þið? +
Við bjóðum fría heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu. Sendingar utan svæðis eru mögulegar gegn aukagjaldi — hafðu samband í síma 778-8817 eða sendu póst á renteventiceland@gmail.com og við finnum lausn.
Er uppsetning innifalin? +
Við tengjum bjórdælur að kostnaðarlausu. Uppsetning á veislutjöldum er valkvæð aukaþjónusta sem hægt er að bæta við við bókun. Uppsetning kostar 29.990 kr fyrir 5×8 m tjald og 24.990 kr fyrir 4×5 m tjald. Ef uppsetning er valin reisum við tjaldið og tökum það niður eftir viðburðinn.
Þarf ég að þrífa glösin og búnaðinn? +
Nei — þú þarft ekki að þrífa glösin. Skilaðu þeim bara eftir notkun og við sjáum um þrif. Við biðjum þó um að búnaður sé skilaður á sama stað og í eðlilegu ástandi.
Hvað er lágmarksleigutími? +
Leiga miðast almennt við einn dag eða einn viðburð. Fyrir helgarviðburði er afhending og sókn ákveðin eftir samkomulagi. Sendu okkur dagsetningu og við staðfestum framboð og verð.
Hvernig bóka ég? +
Veldu búnað, settu inn dagsetningu og sendu bókun eða greiðslu á netinu. Þú getur líka haft samband í síma 778-8817 eða sent póst á renteventiceland@gmail.com og við klárum þetta með þér.
Hvað gerist ef eitthvað brotnar? +
Brotin glös eða skemmdir á búnaði eru rukkuð samkvæmt verðskrá. Við förum yfir allt áður en bókun er staðfest. Nánari upplýsingar eru í skilmálum leigu.
Hvenær sækið þið búnaðinn? +
Við sækjum búnaðinn eftir viðburð eða næsta dag eftir samkomulagi. Tímasetning er staðfest fyrir afhendingu.
Get ég breytt bókuninni eftir að hún er send? +
Já, hafðu samband sem fyrst og við reynum að aðlaga bókunina eftir framboði.