RentEvent · rentevent.is · 778 8817
Leiðbeiningar
Veislutjald 4×5 m – uppsetning
Svona reisir þú tjaldið og tekur það niður. Bættir þú við uppsetningu og niðurtekt? Þá sjáum við um þetta allt og þú þarft ekki að gera neitt.
Áður en þú byrjar
- Athugaðu veðurspána. Tjaldið er ekki reist ef meðalvindur fer yfir 10 m/s eða hviður yfir 15 m/s.
- Svæðið þarf að vera slétt og fast, minnst 5 × 6 m, með 3 m lofthæð án greina, þakrenna eða lína.
- Hreinsaðu steina, greinar og annað hvasst af svæðinu svo dúkurinn rifni ekki.
- Fáðu hjálp. Það þarf minnst þrjá til að lyfta þakgrindinni.
Hlutirnir í tjaldinu
| 1Stutt stöng | 6 stk. |
|---|---|
| 2Löng stöng | 12 stk. |
| 3Fótur | 6 stk.: 4 hornfætur með götum + 2 miðfætur |
| 4Tengihólkur (tengir stutta og langa stöng) | 6 stk. |
| 5Horn, 3 armar, 110° (hornin) | 4 stk. |
| 6Horn, 4 armar, 110° (langhliðar) | 2 stk. |
| 7Horn, 3 armar, 140° (endar mænis) | 2 stk. |
| 8Horn, 4 armar, 140° (mænir) | 1 stk. |
| Þakdúkur | 1 stk. |
| Hliðarspjöld | 4 stk. |
Hæð við hliðar 2,12 m og 2,98 m undir mæni.
Uppsetning skref fyrir skref
- Leggðu allar stangir og horn á jörðina eins og á teikningunni hér að ofan.
- Settu sperrurnar saman: langa stöng (2) og stutta stöng (1) saman með tengihólki (4). Langa stöngin snýr að þakbrúninni og sú stutta að mæninum.
- Stingdu samsettu stöngunum í hornin svo öll þakgrindin liggi samsett á jörðinni. 110° hornin (5 og 6) fara á langhliðarnar og 140° hornin (7 og 8) á mæninn í miðjunni.
- Lyftið annarri langhliðinni og stingið fótunum (3) í hornin þeim megin. Hornfæturnir fjórir með götunum fara í hornin.
- Dragið þakdúkinn yfir grindina og bindið hann vel fastan.
- Lyftið hinni langhliðinni og stingið restinni af fótunum í.
- Hengdu hliðarspjöldin á.
- Festu tjaldið niður með því sem fylgir og farðu hringinn til að athuga að öll tengi sitji föst og dúkurinn sé vel bundinn.
Meðan á veislunni stendur
- Enginn opinn eldur, grill eða gashitari inni í tjaldinu. Rafmagnshitararnir okkar eru í lagi.
- Ef vindur fer yfir mörkin: farðu með gestina út og taktu tjaldið niður. Ertu óviss? Hringdu í 778 8817.
Niðurtekt og skil
- Taktu hliðarspjöldin af og brjóttu þau saman.
- Losaðu festingarnar, lyftið annarri hliðinni og takið fæturna úr þeim megin, svo hinni.
- Leystu þakdúkinn og taktu hann af grindinni. Taktu svo grindina í sundur.
- Hristu gras og óhreinindi af dúkunum og settu allt aftur í pokana. Er dúkurinn blautur? Láttu hann þorna ef þú getur, annars láttu okkur bara vita.
Vantar aðstoð? Hringdu í 778 8817. Allar leiðbeiningar