
Borð og bekkir
Borð og tveir bekkir sem taka 6–8 manns. Fyrir salinn eða aukagestina heima.
Þorrablót · janúar – febrúar
Borð og bekkir, glös, bjórdæla og barþjónn fyrir þorrablótið í salnum, félagsheimilinu eða heima. Við keyrum búnaðinn til þín og sækjum hann eftir blótið.
Þorrinn 2027
Þorrinn stendur frá bóndadegi til þorraþræls. Flest þorrablót eru haldin á föstudags- og laugardagskvöldum þar á milli.
Þorrinn hefst. Fyrstu þorrablótshelgarnar koma strax á eftir.
Gott að bóka í desemberFélagasamtök, starfsmannafélög, íþróttafélög og fjölskyldur halda blótin sín í sölum og heima.
Bókaðu um leið og salurinn er kominnSíðasti dagur þorra. Konudagurinn er sunnudaginn 21. febrúar.
Síðasta þorrablótshelginVinsælt á þorrablót

Borð og tveir bekkir sem taka 6–8 manns. Fyrir salinn eða aukagestina heima.





Tvö dæmi
Reiknað með verðunum okkar í dag. Þetta eru bara dæmi og þú velur það sem hentar.
Sæti fyrir alla, bjór á dælu, glös fyrir gos og vatn og hlýtt útisvæði.
Dæmi, ekki tilboð.
Aukasæti fyrir gestina og bjór á dælu án þess að ísskápurinn fyllist af flöskum.
Dæmi, ekki tilboð.
Hve mikið þarf?
| Borð og bekkir | 1 sett á hverja 6–8 sitjandi gesti |
|---|---|
| Bjórdæla | 1 dæla á hverja 60 gesti. Dælan afgreiðir 20–35 lítra á klukkustund |
| Barþjónn | Um 1 barþjónn á hverja 35 gesti |
| Glös | Um 1,5 glös á gest af hverri tegund sem er í boði |
| Hitari | 1 fyrir reykingasvæðið eða innganginn |
Bjórdælan
Dælan kælir bjórinn jafnóðum, þarf ekkert CO₂-hylki og passar á kúta frá öllum stóru bjórframleiðendunum á Íslandi. Þú leggur til kútinn og velur S- eða A-kúplingu þegar þú bókar.
Algengar spurningar
Sendu okkur gestafjöldann og salinn og við setjum saman tillögu að búnaði og verði.
Vafrakökur
Má bjóða þér köku?
Nauðsynlegar kökur halda utan um bókunarlistann. Með þínu leyfi notum við líka kökur frá Google og Meta til að mæla umferð og bæta auglýsingar. Persónuverndarstefna