
Límónusafi 1 L
Kaldpressaður lífrænn límónusafi, 100% safi.
3.999 kr.flaskan
Um vöruna
Bardjús límónusafi (lime-safi) er hreinn, kaldpressaður og lífrænn safi í 1 lítra flösku. Engum sykri eða aukaefnum er bætt við, svo þú færð sama ferska bragðið og af nýkreistu lime án þess að kreista heilan kassa af ávöxtum.
Lime-safi er ómissandi á barnum. Hann fer í óáfengt mojito, lime-límonaði, óáfengt Mule með ginger beer, óáfenga Paloma og flesta suðræna mocktails. Venjulega eru notaðir 20–25 ml í glas, svo lítrinn dugar í um 40–50 drykki.
Í stað þess að gerilsneyða safann er hann frystur strax eftir pressun, og þess vegna helst bragðið ferskt. Hann kemur frosinn til þín. Geymdu hann í frysti (−18 °C), þar sem hann geymist í 12 mánuði, og þíddu hann í kæli daginn fyrir veisluna.
Góð þrenna: límónusafi, sykursíróp og þurrkað lime til skrauts. Safinn kemur með leigubúnaðinum eða barþjóninum. Fleiri vörur í síróp, safar og mixerar.
Upplýsingar
| Magn | 1 lítri |
|---|---|
| Innihald | 100% lífrænn límónusafi, engin aukaefni |
| Geymsla | Í frysti (−18 °C), geymist í 12 mánuði |
| Framleiðandi | Bardjús |
Algengar spurningar
Hvernig fæ ég vöruna?
Hún kemur með bókuninni þinni. Ef þú pantar bara söluvörur afhendum við innan 1–3 virkra daga – hringdu í 778 8817 og við finnum hentugan tíma.
Hvernig á að geyma hana?
Í frysti (−18 °C), þar geymist hún í 12 mánuði. Þíddu hana í kæli daginn áður.
Er munur á límónusafa og lime-safa?
Nei, límóna er íslenska heitið á lime. Þetta er 100% lífrænn safi úr lime.
Hve mikið þarf af límónusafa?
Gerðu ráð fyrir 20–25 ml í hvern drykk. Einn lítri dugar í um 40–50 drykki.
Fleiri spurningar? Algengar spurningar eða hringdu í 778 8817.
Umsagnir á Google
Það sem viðskiptavinir segja
„Alvöru snillingar! Kurteisir drengir og hjálpuðu mér að smíða kokteilalista fyrir veisluna mína❤️“
„Mjög góð þjónusta. Ekkert vesen komu með hlutina og sóttu. Mjög ánægð og mæli með að panta hjá þeim“
„Top þjónusta ! Skutluðu og sóttu vörurnar til mín og ég er ótrúlega ánægð með allt! Mæli með !“
Passar vel með
Allur búnaðurinn

