Brúðkaup er einn stærsti dagur lífsins og þá viltu að allt gangi snurðulaust. Hvort sem veislan er haldin heima, í garði eða sveitasetri þarf réttan búnað til að gestunum líði vel frá móttöku til loka kvölds. Hér er gátlisti yfir allt sem þarf í brúðkaupsveisluna – og þú getur leigt það á einum stað hjá RentEvent.
Skjól og rými: veislutjald
Íslenskt veður er ófyrirsjáanlegt, svo veislutjald er nánast nauðsyn fyrir útibrúðkaup. Það skapar fallegt, afmarkað rými fyrir borðhald, ræður og dans. Fyrir flest brúðkaup hentar 5x8 m tjaldið (30–40 gestir); fyrir minni athafnir dugar 4x5 m tjaldið. Sjá nánar: hvaða veislutjald hentar.
Borð og sæti
Gestirnir þurfa að sitja við matinn og ræðurnar. Borð og bekkir eru fljótleg í uppsetningu og hvert sett rúmar 6–8 manns – reiknaðu fjölda út frá gestalistanum.
Barinn og skálað
Vel búinn bar setur svip á brúðkaupið, allt frá móttökukokteil til skálaræðunnar:
- Vínglös fyrir rauð- og hvítvín og freyðivín í skálinni.
- Kokteilaglös, highball og lowball fyrir móttökudrykki og kokteila.
- Bjórdæla og bjórglös fyrir ískaldan bjór.
- Kokteilasett og síróp fyrir heimagerða kokteila.
Barþjónn fyrir móttökuna
Faglegur barþjónn tekur á móti gestum með kokteil í hönd og sér um barinn allt kvöldið, svo þið og fjölskyldan getið notið dagsins. Góð viðmiðun er einn barþjónn fyrir hverja 60 gesti. Lesa meira: barþjónn í veislu.
Hiti fyrir kvöldið
Þgar líður á kvöldið kólnar oft. Útihitari heldur gestunum heitum á pallinum eða undir tjaldinu svo stemmningin haldist fram eftir.
Skipulag og bókun
Brúðkaupsbúnaður gengur hratt út yfir sumarið, svo bókaðu með góðum fyrirvara um leið og dagsetningin er klár. Skoðaðu allan búnaðinn eða hafðu samband og við hjálpum ykkur að setja saman réttan pakka fyrir stóra daginn. Sjá líka heildar veislugátlistann.
Þarftu búnað í veisluna?
Tjöld, bjórdælur, glös, borð og barþjónar — bókaðu á netinu með frírri heimsendingu á höfuðborgarsvæðinu.
Fleiri greinar
Árshátíð og fyrirtækjapartý: gátlisti fyrir viðburðinn
Gátlisti fyrir árshátíð og fyrirtækjapartý – allt frá tjaldi og bar til barþjóns, á einum stað.
Lesa greinHvað þarf í veisluna? Gátlisti fyrir veisluna heima
Heildargátlisti fyrir veisluna heima – tjald, sæti, bar, glös, barþjónn og hiti, allt á einum stað.
Lesa greinHvaða veislutjald hentar best? Stærðir, gestafjöldi og ráðleggingar
Hvernig velurðu rétt veislutjald eftir gestafjölda og tilefni – samanburður á 4x5 m og 5x8 m, veður og uppsetning.
Lesa grein