
Engifersafi 250 ml
Kaldpressaður lífrænn engifersafi.
2.099 kr.flaskan
Um vöruna
Bardjús engifersafi er sterkur, kaldpressaður og lífrænn safi úr fersku engiferi. Engiferið er þvegið í höndunum, kreist varlega og safinn síaður tvisvar, svo hann er tær og bragðmikill.
Nokkrir dropar eða 5–10 ml gefa drykknum hita og ferskleika. Prófaðu engifer-límonaði með sítrónusafa og sódavatni, heimagert engiferskot, eða styrktu bragðið af ginger beer og engiferöli í óáfengum kokteilum. Flaskan dugar í 25–50 drykki.
Í stað þess að gerilsneyða safann er hann frystur strax eftir pressun, og þess vegna helst bragðið ferskt. Hann kemur frosinn til þín. Geymdu hann í frysti (−18 °C), þar sem hann geymist í 12 mánuði, og þíddu hann í kæli daginn fyrir veisluna.
Engifersafinn kemur með leigubúnaðinum eða barþjóninum. Sjá líka óáfenga drykki og mixera og fleiri safa og síróp.
Upplýsingar
| Magn | 250 ml |
|---|---|
| Innihald | Lífrænn engifersafi |
| Geymsla | Í frysti (−18 °C), geymist í 12 mánuði |
| Framleiðandi | Bardjús |
Algengar spurningar
Hvernig fæ ég vöruna?
Hún kemur með bókuninni þinni. Ef þú pantar bara söluvörur afhendum við innan 1–3 virkra daga – hringdu í 778 8817 og við finnum hentugan tíma.
Hvernig á að geyma hana?
Í frysti (−18 °C), þar geymist hún í 12 mánuði. Þíddu hana í kæli daginn áður.
Hve mikinn engifersafa á að nota í drykk?
Byrjaðu á 5 ml í glas og bættu við eftir smekk. Safinn er sterkur, svo lítið dugar.
Má nota engifersafann í engiferskot?
Já. Blandaðu honum við sítrónusafa og smá síróp eða hunang og þynntu með vatni eftir smekk.
Fleiri spurningar? Algengar spurningar eða hringdu í 778 8817.
Umsagnir á Google
Það sem viðskiptavinir segja
„Alvöru snillingar! Kurteisir drengir og hjálpuðu mér að smíða kokteilalista fyrir veisluna mína❤️“
„Mjög góð þjónusta. Ekkert vesen komu með hlutina og sóttu. Mjög ánægð og mæli með að panta hjá þeim“
„Top þjónusta ! Skutluðu og sóttu vörurnar til mín og ég er ótrúlega ánægð með allt! Mæli með !“
Passar vel með
Allur búnaðurinn

