Ókeypis reiknivél
Veislureiknivél: hvað þarf mikið fyrir veisluna?
Sláðu inn fjölda gesta, tegund veislu og hvað á að vera í boði. Reiknivélin segir þér hve mörg glös, barþjóna og borð þú þarft og hve mikið af drykkjum og klaka, með verði frá RentEvent.
Reiknivélin
Áætlun miðað við listaverð. Við staðfestum framboð og sendum tilboð.
Tillaga að fyrirspurn
Textinn fyllist út úr reiknivélinni og uppfærist þegar þú breytir henni. Þú mátt breyta honum eins og þú vilt áður en þú sendir. Við staðfestum framboð og sendum tilboð innan sólarhrings.
Það sem þú leggur til
Drykkir, klaki og vatn eru ekki innifalin. Svona mikið þarf um það bil:
Viðmiðin
Svona reiknar veislureiknivélin
Reiknivélin notar sömu viðmið og barþjónarnir okkar nota þegar þeir skipuleggja bar fyrir veislu. Tölurnar eru góður upphafspunktur, en hver veisla er ólík, svo þú getur breytt fyrirspurninni áður en þú sendir hana. Við staðfestum framboð og sendum tilboð.
- Drykkir: 2 á gest fyrstu klukkustundina og 1 á klukkustund eftir það. Í fermingum er talan lækkuð um þriðjung.
- Óáfengt: minnst fjórðungur drykkjanna, meira í fermingum og útskriftum.
- Glös: 2–3 á gest yfir veisluna, því ekki er vaskað upp á staðnum. Þú skilar glösunum óþvegnum.
- Barþjónn: einn á hverja 35 gesti, 8.990 kr. á klukkustund og lágmark 2 klukkustundir.
- Bjórdæla: ein á hverja 60 gesti. Einn 30 lítra kútur gefur um 85 glös.
- Borð og bekkir: eitt sett á hverja 7 sitjandi gesti, eða á hverja 14 gesti ef flestir standa.
- Tjöld: 5×8 m rúmar um 30 sitjandi eða 45–60 standandi og 4×5 m um 15 sitjandi eða 30 standandi. Fyrir stærri hópa leggur reiknivélin til fleiri tjöld.
- Hiti og klaki: einn útihitari á hverja 20 m² tjalds og 0,5 kg af klaka á gest, eða 1 kg ef kokteilar eru á seðlinum.
Nánar í greinunum um drykki fyrir 50 eða 100 manna veislu, hve mörg glös þarf, síróp og puré og hvað barþjónn kostar.

Spurningar og svör
Algengar spurningar
Hve mikið af drykkjum þarf á mann í veislu?
Gerðu ráð fyrir 2 drykkjum á mann fyrstu klukkustundina og 1 á klukkustund eftir það. Í fjögurra tíma veislu eru það um 5 drykkir á mann og minnst fjórðungur þeirra ætti að vera óáfengur. Í fermingum og síðdegisboðum má lækka töluna um þriðjung.
Hve mörg glös þarf í veislu?
Um 2–3 glös á gest yfir kvöldið ef ekki er vaskað upp á staðnum, eða um 250 glös fyrir 100 manns. Leiguglösunum skilar þú óþvegnum og við sjáum um uppvaskið.
Hve marga barþjóna þarf í veislu?
Við mælum með einum barþjóni á hverja 35 gesti, svo biðröðin við barinn haldist stutt. Barþjónn kostar 8.990 kr. á klukkustund og lágmarkið er 2 klukkustundir.
Hvaða veislutjald þarf ég?
5×8 m tjaldið rúmar um 30 gesti sitjandi eða 45–60 standandi og 4×5 m tjaldið um 15 sitjandi eða 30 standandi. Reiknivélin leggur til eins mörg tjöld og gestafjöldinn kallar á, og við staðfestum framboð og sendum tilboð.
Hvernig fæ ég tilboð í það sem reiknivélin leggur til?
Fylltu út nafn, netfang og síma undir tillögunni og ýttu á „Senda fyrirspurn“. Textinn í fyrirspurninni fyllist út úr reiknivélinni og þú mátt breyta honum eins og þú vilt. Við staðfestum framboð og sendum tilboð innan sólarhrings. Flutningur til og frá er frír fyrir pantanir yfir 10.000 kr..
Viltu frekar fá tilboð?
Segðu okkur frá veislunni og við setjum saman tillögu að búnaði og verði. Svar innan sólarhrings.